fbpx

Una Torfa

India Pop Singer-songwriter
Thursday Nov 2 20:00 - 20:40
ART MUSEUM
Official Program - Wristband Needed
Locate on Map
Pop
Singer-songwriter
India

Söngvaskáldið Una Torfa er fædd árið 2000. Una semur og spilar ljúfsár lög á íslensku um ástina og lífið og gaf hún út sína fyrstu plötu í júní árið 2022. Textar Unu eru fjölbreyttir og taka á ýmsum hliðum margslunginna tilfinninga. Hún fangar nákvæmar tilfinningar og kemur þeim í orð, finnur lítil augnablik og hverfular hugmyndir og festir þær í textum.
Á liðnu ári hefur Una komið víða fram, sem dæmi má nefna tónleika hennar í Iðnó á Iceland Airwaves, framkomur í Vikunni með Gísla Marteini við þrjú tilefni, tvenna tónleika á Akureyri og fjölmörg önnur gigg. Una Torfa hlaut Kraumsverðlaunin fyrir plötuna sína “Flækt og týnd og einmana”.
Una kemur ýmist fram ein, í dúett með rafmagnsgítarleikara eða með hljómsveit og tónleikar verða að sögustund.

Undo